Fjölskyldan á Syðra Holti að störfum

Að yrkja jörðina og mannsandann

Saga Yrkju hófst þegar stórfjölskyldan flutti úr borginni og fann draumastaðinn norður í Svarfaðardal. Í Syðra Holti stundum við biodynamiska ræktun, sem er sjálfbær landbúnaðarstefna þar sem jarðvegur, plöntur, dýr og fólk eru hluti af sama lífkerfi.

Við stundum ekki fjöldaframleiðslu, heldur göngum við í takt við náttúruna og bjóðum upp á það sem árstíðirnar gefa okkur hverju sinni. Þetta er okkar hjartans mál og endurgjöf til jarðarinnar.

Ferskt frá jörðinni heim til þín

1. Pantað og bætt við

Tryggðu þér grænmetiskassann eða verslaðu stakar vörur. Áskrifendur geta bætt við auka grænmeti eða súrkáli fyrir komandi afhendingu.

2. Uppskerum

Við ræktum jörðina á ábyrgan og lífrænan hátt. Á miðvikudögum handtínum við, þvoum og pökkum uppskeru vikunnar.

3. Fersk afhending

Fimmtudagar eru afhendingardagar. Sæktu frítt í Syðra Holt eða á tilteknum afhendingarstöðum. Einnig bjóðum við uppá heimkeyrslu á ákveðnum svæðum gegn vægu gjaldi.

Meira en bara grænmeti

Yrkja snýst um að skapa nærandi líf þar sem samfélag og menning mættast. Skoðaðu okkar matarhandverks-framboð, og fylgstu með viðburðum á býlinu, þar sem samfélag og menning mætast.

Skoða allar vörur
Handgert súrkál og afurðir frá Yrkju