CSA
Hvað er CSA?
CSA stendur fyrir Community Supported Agriculture, eða samfélagsstuddur landbúnaður, sem er mjög þekkt fyrirkomulag erlendis. Það er form búskapar sem tengir garðyrkjubóndann við viðskiptavini sína sem vilja njóta lífrænna grænmetisafurða og jafnframt styðja bóndann með því að vera í áskrift yfir ræktunartímabilið. Með því að vera í áskrift ertu með beinum hætti að styðja við ræktun í þínu nærumhverfi og styrkja þar með þitt nærsamfélag. Þetta er einnig frábær leið til að tengjast árstímanum og upplifa þær allsnægtir sem sumarið hefur uppá að bjóða.
Þetta fyrirkomulag er ekki þekkt hérlendis en okkur í Syðra Holti langar að innleiða það og sjáum við þetta sem nokkurs konar þróunnarferli. Það mun gera okkur kleift að gera áætlun um það magn grænmetis sem við sáum, ræktum og uppskerum. Þetta er liður í því að koma í veg fyrir matarsóun auk þess sem þetta er tækifæri fyrir okkur að byggja upp traustan stuðning frá samfélaginu og um leið einblína á það að sjá ykkur fyrir fersku, næringarríku grænmeti!
Með því að gerast áskrifandi verður þú meðlimur í CSA, samfélagsstuddum búskap yfir ræktunartímabilið og því fylgir skuldbinding um reglubundin kaup á grænmetiskassa.
Að taka þátt í CSA er tækifæri fyrir þau ykkar sem sjá eldhúsið sem skapandi rými þar sem fjölbreytileiki í grænmeti frá okkur getur ýtt undir sköpunargleði og hvatt til skemmtilegra tilrauna í eldhúsinu.
Markmiðið með samfélagsstuddum búskap er að ýta undir fjölbreytileika í matvælaframleiðslu og kenna samfélaginu okkar (og þar meðtalið börnunum okkar) að neyta árstíðarbundinnar fæðu úr okkar nærumhverfi.

Ávinningur af því að gerast CSA meðlimur:
- Afhending vikulega/aðra hverja viku af næringarríkri og ferskri uppskeru sem ræktuð er í þínu nærumhverfi án notkunar skaðlegra efna og skordýraeiturs.
- Áskrifendur njóta forgangs ef um takmarkaða uppskeru af ákveðinni tegund er að ræða.
- Taka þátt í því að draga úr úrgangi umbúða og plasts. Við höfum það markmið að lágmarka umbúðir og nota endurnýtanlega og plastlausa valkosti eftir fremsta megni.
- Sent verður fréttabréf á tveggja vikna fresti þar sem við miðlum nýjustu uppákomum og fréttum frá bóndabænum.
- Tækifæri til að kynnast því hvernig ræktunin fer fram ásamt því að kynnast þeim einstaklingum sem að henni standa.
- Að styðja við sjálfbært fjölskyldurekið fyrirtæki í þínu nærumhverfi.

Hvers má vænta um innihald kassans?
Þú mátt eiga von á fjölbreyttu úrvali af grænmeti á tímabilinu og má þar sem dæmi nefna: kryddjurtir, ólíkar káltegundir (m.a. grænkál, hvítkál, spergilkál), lauktegundir (laukur, graslaukur, blaðlaukur) og rótargrænmeti. Einnig geta kassarnir innihaldið afurðir sem við vinnum úr grænmetinu. Í upphafi munu kassarnir einkennast af grænu, léttu grænmeti en eftir því sem líður á tímabilið þéttist innihald kassans og þróast yfir í að innihalda aukið magn af rótargrænmeti.
Ef þú hefur einhverjar spurningar er þér velkomið að hafa samband með því að senda okkur tölvupóst á sydraholt@sydraholt.is eða hringja í síma 768 1624

Hvað kostar að vera meðlimur í CSA ?
Tímabilið sem um ræðir eru alls 14 vikur, 2. júlí - 1. október
Vikuleg afhending - 5.715 ISK / vikan (80.000 ISK / allt tímabilið)
Afhending aðra hverja viku - 5.715 ISK / vikan ( 40.000 ISK / allt tímabilið)
Sendingarkostnaður bætist við suma afhendingarstaði. Nánari upplýsingar koma eftir skráningu.*
Dæmi um vikuskammt um miðjan Ágúst:
Hvítkál, rauðrófur, gulrætur, svartkál, salat blanda og brokkolí
Er hægt að dreifa greiðslum?
Hægt er að velja greiðsludreifingu í gegnum Netgíró. Ef það hentar þér betur er hægt að velja þann valmöguleika þegar gengið er frá pöntun.
Ef kostnaður er hindrun í því að gerast CSA meðlimur bendum við á að hafa samband við Alejandra á alejandra@sydraholt.is til að ræða aðra möguleika. Á þessu tímabili munum við bjóða upp á möguleikan á því að greiða fyrir CSA aðild í formi sjálfboðaliðavinnu á bænum.

Hvað ef ég fer í frí?
Hafðu samband við okkur áður en tímabilið hefst svo við getum fundið lausn á því saman. Oft finna áskrifendur vin eða ættingja sem fær að njóta kassans í sinni fjarveru