Um Yrkju
Matur, menning og lífræn ræktun í takt við íslenska náttúru.
Í Syðra Holti í Svarfaðardal rétt utan við Dalvík blómstrar fjölskyldurekið fyrirtæki með skýra framtíðarsýn. Undir merkjum Yrkja Svarfaðardal er matarhandverk í öndvegi, ræktað lífrænt vottað grænmeti og viltum jurtum safnað.
Saga Yrkju hófst þegar stórfjölskyldan flutti úr borginni og fann draumastaðinn norður í Svarfaðardal. Þar slá hjörtu okkar í takt við sveitina og nið lækjarins. Við lítum á framtakið sem lífstíðarverkefni, það er okkar hjartans mál og endurgjöf til jarðarinnar.
Að yrkja jörðina og mannsandann
Yrkja snýst um að skapa nærandi líf fyrir samfélagið og jörðina.
Í Syðra Holti fer fram biodynamisk ræktun sem er sjálfbær landbúnaðarstefna sem byggir á hugmyndum austurríska heimspekingsins Rudolf Steiner. Hún er í grunninn lífræn ræktun, en gengur skrefinu lengra með því að líta á býlið sem lifandi heild þar sem jarðvegur, plöntur, dýr og fólk er hluti af sama lífkerfi.
Við ræktum jörðina á ábyrgan og lífrænan hátt með virðingu, alúð og visku. Við trúum því að sannur vöxtur verði aðeins til þegar hugsjón, gæði og samfélag fléttast saman.
Í samhljóm við árstíðirnar
Við erum matarhandverks bændur sem leggjum áherslu á fjölbreyttni og göngum í takt við náttúruna sem þýðir að ekki er alltaf stöðugt framboð á öllum vörum heldur eru þær árstíðabundnar.
Með því að leggja áherslu á að borða árstíðabundna fæðu aðlögum við okkur að náttúrulegri hringrás lífsins. Þannig fáum við ferska, bragðgóða og næringaríka fæðu.
Samfélag og menning
Þar sem samfélag nærist á menningu þá leggjum við upp úr því að skapa tækifæri til samveru. Við fáum til okkar skapandi og gefandi fólk og haldnir eru hinir ýmsu viðburðir. Yrkja er ekki bara bú heldur staður þar sem ræktun og lífsviðhorf mætast.