Spurt og svarað
Hvenær og hvar fæ ég kassann minn afhentan?
Afhendingardagar eru á fimmtudögum. Þú getur valið um þrjár leiðir þegar þú gengur frá pöntun:
- Sótt í Syðra Holt: Kassinn bíður þín tilbúinn á býlinu.
- Sótt á afhendingarstað: Hægt er að velja afhendingarstaði á Norðurlandi í netversluninni. Ef óskað er eftir afhendingu á öðrum stað en þeim sem tilgreindir eru, vinsamlegast hafið samband við okkur. Í sumar munum við leggja áherslu á dreifingu á Norðurlandi og í nærumhverfi okkar, og því verða grænmetissendingar til Reykjavíkur í hléi um sinn.
- Heimsending: Við bjóðum upp á heimkeyrslu á Dalvík, Fjallabyggð, Akureyri og Húsavík gegn vægu sendingargjaldi.
Er hægt að dreifa greiðslum?
Hægt er að velja greiðsludreifingu í gegnum Netgíró. Ef það hentar þér betur er hægt að velja þann valmöguleika þegar gengið er frá pöntun.
Hvað ef ég fer í sumarfrí eða kemst ekki að sækja?
Við skiljum vel að fólk fari í frí yfir sumartímann, en uppskeran er þó enn á sínum tíma og mælum við með að þú leyfir vini, nágranna eða ættingja að sækja kassann og njóta uppskerunnar þá vikuna.
Ef enginn getur tekið við kassanum, vinsamlegast láttu okkur vita með minnst þriggja daga fyrirvara. Uppskeran þín þá vikuna mun renna til góðgerðarmála eða nýtast á býlinu en við getum því miður ekki fært kassann yfir á aðra viku eða endurgreitt stakar vikur.
Get ég valið hvaða grænmeti fer í kassann minn?
Grænmetiskassinn endurspeglar nákvæmlega það sem er ferskast og best á akrinum hverju sinni. Við göngum í takt við náttúruna, sem þýðir að innihaldið er breytilegt frá viku til viku.
Það er ekki hægt að velja eða skipta út grænmeti í kassanum. Kassinn hvetur til fjölbreytni í eldamennsku og er frábær leið til að kynnast nýju, íslensku lífrænu grænmeti.
Er allt í kassanum ræktað í Syðra Holti?
Já! Allt grænmeti í kassanum er ræktað í Syðra Holti. Við stundum biodynamíska og lífræna ræktun og allar okkar afurðir eru lífrænt vottaðar.