Uppskera vikunnar – Vika 31
Uppskera vikunnar – Vika 31
Couldn't load pickup availability
Uppskera vikunnar, ferskt frá jörðinni heim til þín
Fáðu ferskt og lífrænt vottað grænmeti beint frá býlinu okkar á Syðra Holti. Þessi staki grænmetiskassi er fullkomin leið til að njóta þess allra besta sem jörðin gefur af sér þessa vikuna, án þess að skuldbinda þig í áskrift.
Við stundum ekki fjöldaframleiðslu heldur göngum í takt við náttúruna. Innihald kassans breytist því frá viku til viku eftir því hvað er tilbúið til uppskeru, sem hvetur til fjölbreytni og skemmtunar í eldamennskunni.
Í kassanum þessa vikuna:
Red Salad Bowl: 400 gr poki
Kúrbítur: 1 kg
Hvítkál: 1 stk
Hnúðkál: 2 stk
Red Russian kál: 250 gr búnt
Salatlaukur: 250 gr búnt
Fyrirkomulagið:
Pantanir: Panta þarf fyrir miðnætti á þriðjudögum til að fá afhendingu sömu viku.
Afhendingardagar: Fimmtudagar (aðrir staðir), en fyrir þá sem sækja á Syðra Holt er hægt að nálgast uppskeruna á miðvikudögum eftir kl. 16:00.
Afhendingarleiðir: Hægt er að sækja á Syðra Holt eða á afhendingarstað á Norðurlandi. Einnig er í boði heimsending á Akureyri, Dalvík, Fjallabyggð og Húsavík gegn vægu gjaldi (valið í greiðslugátt).
Vinsamlegast kynntu þér skilmála okkar varðandi afhendingar á Spurt & Svarað síðunni áður en gengið er frá kaupum.
