Gulrætur - 500gr
Gulrætur - 500gr
Couldn't load pickup availability
Gulrætur - 500gr
Þessar nýuppteknu gulrætur eru einstaklega stökkar og sætar. Þær koma beint úr jörðinni með grænu grasinu á, sem hjálpar til við að varðveita ferskleikann lengur. Gulrótagrasið er einnig frábært hráefni sem hægt er að fullnýta; til dæmis í pestó eða til að bragðbæta súpur og soð. Gulræturnar eru vottaðar lífrænar og ræktaðar í sátt við náttúruna með biódýnamískum aðferðum.
Bættu við kassann eða keyptu stakt Þú getur keypt þessa vöru eina og sér, eða notað hana til að stækka vikulegu uppskeruna þína. Fullkomið fyrir þá sem vilja extra skammt af ferskum gulrótum þessa vikuna!
Fyrirkomulagið
Pantanir: Panta þarf fyrir miðnætti á þriðjudögum til að fá afhendingu sömu viku.
Afhendingardagar: Fimmtudagar (aðrir staðir), en fyrir þá sem sækja á Syðra Holt er hægt að nálgast uppskeruna á miðvikudögum eftir kl. 16:00.
Afhendingarleiðir
Fyrir áskrifendur: Veldu einfaldlega „Bæta í kassann minn“ í greiðslugáttinni til að fá vöruna afhenta með grænmetiskassanum þínum.
Stakar pantanir: Hægt er að sækja til okkar á Syðra Holt eða á afhendingarstað á Norðurlandi. Heimsending stendur til boða á Akureyri, Dalvík, Fjallabyggð og Húsavík.
Vinsamlegast kynntu þér skilmála okkar varðandi afhendingar á Spurt & Svarað síðunni áður en gengið er frá kaupum.
